Monday, July 23, 2007

Bloggað á sumardögum

Ég hef ákveðið að byrja að blogga. Í stað þess að fara heim og sofa, þegar ég er ekki að vinna, og dreyma um fegurðir lífsins hef ég ákveðið að fara heim og skrifa um þær í staðinn.
Í dag er bjartur dagur. Það er ekki það mikil sól að ég sé stressuð að vera inni því ég sé ekki að nota góða veðrið, bara passlega gott veður. Ég fór í göngutúr með Siggu Ástu í Kjarnaskógi áðan og er jafnvel að fara í göngutúr með Sigríði á eftir. Að leyfa sér svo að segja að maður noti ekki tímann vel. Það var rosalega mikið sumar í Kjarnaskógi, það er líka sumar.
Sumardagarnir byrja og enda hver á fætur öðrum. Ég hef komist að því að þetta sumarið eru engir mánudagar, þriðjudagar eða vikudagar yfir höfuð í mínu lífi. Það eru bara sumardagar. Það er fínt.
Á sumardegi fór ég á fjölskyldumót í Vaglaskógi og ég gleymdi ekki langömmu. Það var ljómandi gaman og takk til allra ættingja fyrir góða skemmtun.
Eftir um það bil viku fæ ég svar frá Danmörku. Þá kemst ég að því hvort ég verði í Kaupmannahöfn, Århus eða Reykjavík. Arkítektúr eða stjórnmálafræði! Mér líst bara ágætlega á þetta allt saman. Það verður toppurinn að fá þetta á hreint.

1 comment:

Tóta said...

Elsku besta Maggan mín...frábært að þú sért byrjuð að blogga aftur.
Innilega til hamingju med skólann aftur. Ég er svo virkilega stolt af þér. Þetta er svo spennandi. En mikið rosalega mun ég sakna þín og Kaupmannahafnar sárt. En það verður gott að hafa þig allaveganna í sama landi svo við getum vonandi verið duglegar að heimsækja hvor aðra.
Stórt knús til þín frá Tótu