Sunday, April 3, 2011

Sidasti spottinn til Totu

Og eins og Islendingar sogdu mer ad passa mig i Frokkum og Frakkar sogdu mer ad passa mig a Marokkonum og Marokkanar sogdu mer ad passa mig a Mauritonum hljomadi heillaradid i Mauritaniu upp a ad nu skyldi eg passa mig tvi ad i Afriku vaeru mennirnir svartir. Eg sagdist lofa tvi, smegdi mer i toflurnar minar og helt af stad.

Eg ferdadist med "sjo saetum" ad landamaerum Mauritaniu vid Senegal sem er einskonar leigubill tar sem madur borgar fyrir sitt plass og sem fer af stad tegar oll sjo saetin eru setin. Gamall madur i Bubu bad Allah ad geyma okkur og song ferdalag tegar vid brunudum ut ur eydimerkurborginni og enn og aftur var bjartur ferdadagur framundan. Logreglan var i hadegismatarpasu og landamaerin lokud tegar tangad var komid svo eg tok mer ta til fyrirmyndar og settist og fekk mer bita. "Og hvad var vesalingurinn ad gera her ein a ferd a leid til Senegal", spurdi folkid og fyrr en vardi var eg komin med heimbod og husaskjol fyrir komandi nott i Dakar hja Senegalskri fjolskyldu, busettri a Spani sem var a leid heim i fri. Dvolin i Dakar var tidindalaus og eg var fegin ad fara ut ur mengadri storborginni tegar pappirarnir minir voru klarir til ad eg gaeti haldid afram til Bissau.

Eftir oralangaferd og ymiss aevintyri a leid minni tvert yfir Senegal og Gambiu komst eg loks til Guineu Bissau. Aftur var eg maett i myrkrinu i okunna afriska borg i leit ad ljosum kolli. Og tad klikkadi ekki, hun skaut upp kollinum, kom hlaupandi yfir gotuna og vid fodmudumst storu, fagnadarfunda knusi. Mikid var gott ad sja Totu aftur.

Vid, asamt Soru, danskri vinkonu Tornyjar, sem var lika i heimsokn, eyddum einni viku i Bissau tar sem vid tokum tatt i Carnevalinu i borginni, fylgdumst med hinum mismunandi etnisku gruppum dansa framandi dansa, og drukkum bjor. Tad voru vidbrigdi ad standa berhandleggjud med bjor i hond eftir tveggja vikna dvol i Mauritaniu. Eg setti klutinn minn yfir hofudid, til ad vera ekki svona berskjoldud og til ad skyla mer fyrir solinni. Guinea menn brostu breidu brosi og hrosudu mer fyrir godan carneval buning, svo eg tok klutinn nidur aftur og sagdi skal.

Eitt kvoldid tegar vid satum ad bjordrykkju a einu af carnivalsvaedunum mundi eg eftir hyppavinum minum i Marokko sem hofdu verid a leid til Guineu Bissau. Eg stod upp og skimadi eftir teim og viti menn eg sa rastalokka i fjarska. Vid roltum til teirra og enn urdu fagnadar fundir. Vid sogdum ferdasogur og donsudum vid afriskan trommuslatt fram a nott.

Eftir carnevalid var Torny buin ad plana ferd fyrir okkur a eyjarnar fyrir utan landid. Vid forum af stad med portugolskum og itolskum vinum hennar, keirdum um holotta vegi tar til vid tokum litinn bat sem hossadist a hafinu svo vid rennblotnudum og vorum ordin iskold eftir triggja klukkustunda batsferd. En verdlaunin. Folk brast mismunandi vid tegar eyjan fagra var loks i augnsyn. Torny, sem var buin ad vera togul um stund, tilkynnti adeins lagum romi ad henni vaeri illt i maganum, vard svo um tegar hun vissi ad vid vaerum komin ad hun beygdi sig yfir batsstokkinn og kastadi upp. En hun var fljot ad jafna sig, turrkadi ser um munninn med annari hendi og vinkadi Petur Pan sem flaug burt fra eyjunni sinni med hinni. Vid blikkudum hann oll og lofudum ad vid skyldum haga okkur vel. Sjorinn vard stilltari og fiskarnir hoppudu allt um kring tegar baturinn rann upp a litla strondina.

Vid eyddum fimm dogum i paradis. Bordudum nyveiddan fisk af ollum gerdum, matreyddann a listilegan hatt, bodudum okkur i solinni og sjonum, sigldum i kajak, donsudum fram a nott og horfdum a stjornurnar.

Eg sagdi bless med trega tegar timi var kominn til ad kvedja. Eg ferdadist aftur upp til nordur Senegal a 28 sarsaukafullum klukkustundum. En min bidu godir vinir og aevintyrin heldu afram.

1 comment:

Tóta said...

Thad sem ég var med mikid af fidrildum í maganum kvøldid sem thú komst! Ég á aldrei eftir ad gleyma gledinni thegar thú svo loksins birtist! Svo mikid móment:) Ég elska hvad thú segir skemmtilega frá! Mér finnst svo skemmtilegt ad lesa bloggin thín. Thad var svo gaman ad spjalla vid thig í dag, ég á stråndinni á Bubaque og thú í Bamako.
Ég er spennt ad komast ad thví hvar vid hittumst næst:)
Njóttu ævintýrsins áfram eins og thér einni er lagid